LYNGÁS 1 – GARÐABÆR
Glæsilegt og vel staðsett fjölbýlishús hefur nú risið fyrir tilstuðlan Mannverks að Lyngási 1 í Garðabæ. Um að ræða 3-4ra hæða lyftuhús með 2ja til 5 herbergja íbúðum auk bílakjallara. Á lóðinni er sameiginlegur inngarður með göngustígum og leiksvæði með leiktækjum fyrir börn. Íbúðum fylgja svalir en á jarðhæð sérafnotareitur. Við hönnun á Lyngási 1 var lögð sérstök áhersla á bjartar íbúðir með góða innri nýtingu.
Allar íbúðir eru seldar og verkefninu lokið.
Fjöldi íbúða: 138
Verklok: 2019
Arkitektahönnun: ASK Arkitektar