Lindargata 28-32
Mannverk þróaði og hannaði hugmyndina að baki Lindargötu 28-32 í samvinnu við Teiknistofu Arkitekta. Um er að ræða byggingu smáíbúða í miðbæ Reykjavíkur en það er í samræmi við áherslur Reykjavíkurborgar sem stefna á að fjölga smáíbúðum og þétta byggð. (Aðalskipulag).
Meðalfjöldi íbúa á íbúð (heimili) í Reykjavík hefur farið stöðugt lækkandi undanfarna áratugi. Þessi þróun kallar almennt á aukið framboð minni íbúða í fjölbýlishúsum sem liggja miðlægt í borginni en Miðborg Reykjavíkur og Vatnsmýrin reyndust vinsælust af mögulegum nýbyggingarsvæðum í Reykjavík í nýrri búsetukönnun (sjá nánar hér).
Framkvæmdaaðili: Litlu vellir ehf