Gagnaver

Mannverk hefur unnið við hönnunarstjórnun og framkvæmdir við uppbyggingu gagnavera á Íslandi frá 2012 og aflað sér fagþekkingar í nánu samstarfi við eigendur gagnavera, sérhæfða birgja og undirverktaka. Bygging gagnavera krefst víðtækrar fagþekkingar og skilnings á flóknum rafmagns- og vélakerfum. Öll þessi kerfi kalla á miklar og flóknar stýringar, prófanir og áreiðanleika.
Reynsla, þverfagleg samvinna sem og skilningur á framkvæmd bygginga, samningum og áætlanagerð eru mikilvæg fyrir árangursrík verkefni.

Mannverk hefur í dag sérfræðinga á ýmsum sviðum:

  • Gæða og öryggismál
  • Innkaup og aðfangastýring – góðar tengingar víða um heiminn
  • Hönnunarstjórn
  • Framkvæmda- og byggingatækni
  • Véla- og kælitækni
  • Rafmagnskerfi
  • Stýrikerfi
  • Prófanir og afhending