Við höfum flutt höfuðstöðvar okkar í nýtt húsnæði að Hlíðasmára 12, þriðju hæð, Kópavogi. Vinnuaðstaða starfsmanna Mannverks er nú mun betri sem og aðgengi viðskiptavina að fyrirtækinu.
Mannverk óskar eftir öflugu starfsfólki – Búið að ráða
Mannverk óskar eftir að ráða reynslumikinn verkefnastjóra sem er tilbúin að takast á við krefjandi verkefni og skemmtilegar áskoranir með góðri liðsheild.
-
Helstu verkefni
- Fagleg og fjárhagsleg yfirumsjón með byggingaframkvæmdum
- Undirbúningur og stjórnun verkefna
- Hönnunarrýni og samræming
- Áætlanagerð og eftirfylgni
- Kostnaðareftirlit
- Háskólamenntun á sviði byggingaverkfræði eða tæknifræði
- Mikil og farsæl starfsreynsla af verkefnastjórnun byggingaframkvæmda
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð, menntun í verkefnastjórnun kostur
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Menntunar- og hæfniskröfur
Bókari
Áreiðanlegur og talnaglöggur einstaklingur óskast til starfa við bókhald og almenn skrifstofustörf með góðri liðsheild.
ATH : Búið er að ráða í stöðuna
Helstu verkefni eru
Hæfniskröfur
Nánari upplýsingar
…um störfin veitir Ragnhildur Helgadóttir mannauðsstjóri (ragnhildur@mannverk.is) í síma 771-1104. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið mannverk@mannverk.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Hótel Miðgarður opnar
Mannverk hefur nú lokið við byggingu fyrri áfanga á nýju 150 herbergja hóteli við Hlemm í Reykjavík og tók hótelið á móti sínum fyrstu gestum á 10. júní sl. Þetta er sjötta Center hótelið í Reykjavík og hefur fengið nafnið Miðgarður.
Vinna er hafin við 2. áfanga stækkunar en stefnt er að því að hótelið verði komið í fullan rekstur um áramótin 2016.