Að undanförnu hefur Mannverk í samstarfi við Fasteignasölur staðið fyrir opnu húsi að Herjólfsgötu 32-34 við mjög góðar undirtektir. Ljóst er að mikill áhugi er á íbúðunum enda staðsetning með eindæmum góð.
Yfirlýsing frá Mannverki
Vegna frétta um niðurrif húss við Tryggvagötu vill Mannverk koma eftirfarandi á framfæri:
Mannverk biður Minjastofnun, byggingaryfirvöld og almenning afsökunar á skorti á aðgát við framkvæmdir á byggingareit við Tryggvagötu 10-14. Ljóst er að fyrirtækið hefði átt að leita eftir nánara samstarfi við Minjastofnun um aðferð við framkvæmdirnar áður en sú leið var farin að fella húsið, samtímis því að safna úr því hlutum til endurbyggingar þess.
Mannverk lofar því að húsið sem um ræðir verði endurbyggt. Það hefur ávallt staðið til, enda er það í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti og deiliskipulag sem var unnið í nánu samstarfi við Minjastofnun og skipulagsyfirvöld.
Starfsmenn Mannverks töldu sig vera innan heimilda við framkvæmdina og voru í góðri trú um að þessi leið væri heimil og nauðsynleg við endurbyggingu hússins. Nú hefur komið skýrt í ljós að opinberir aðilar hafa annan skilning á því hvernig framkvæmdin átt að fara fram. Málið er nú til skoðunar og fyrirtækið mun veita allar nauðsynlegar upplýsingar og aðstoð við framgang málsins.
Endurbyggt hús verður að framkvæmdunum loknum sem næst þeirri mynd sem það var í þegar það var byggt árið 1904. Notast verður við byggingarmáta og aðferðir þess tíma. Mikilvægir hlutar hússins voru teknir til hliðar, s.s. hluti burðarvirkis og gluggar, og verða þeir nýttir eftir fremsta megni við endurbyggingu hússins. Í teikningunum er þess gætt að raska ekki heildarsvip götumyndarinnar og að endurbygging eldri húsa og nýbyggingar haldist í hendur. Við hönnunina var leitast við að auka gæði svæðisins og skila endurbyggðum húsum í upprunalegri mynd í bland við fallegar nýbyggingar.
Hjalti Gylfason, framkvæmdastjóri Mannverks: „Það er ljóst að við stigum feilspor og við erum öll mjög leið yfir því. Við viljum njóta trausts og munum draga ríkan lærdóm af þessu máli.“
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig götumyndin mun líta út eftir að endurbyggingunni og öðrum framkvæmdum á reitnum er lokið
Opið hús að Holtsvegi 37-39
Margir lögðu leið sína á opið hús að Holtsvegi 37-39 í gær og fer sala íbúða vel af stað enda er um að ræða glæsilegar byggingar á útsýnisstað í skjólsælum suðurhlíðum Urriðaholts. Fólk notaði tækifærið og skoðaði sýningaríbúðina, naut útsýnis frá hæstu hæðum, rölti um svæðið, spjallaði við fasteignasala og fékk sér kaffi og kleinur.